Norðlingaskóli

Grunnskóli, 1.-10. bekkur

Árvað 3
110 Reykjavík

Norðlingaskóli á sólríkum degi.

Skóladagatal Norðlingaskóla

Hér finnur þú skóladagatal Norðlingaskóla. Í skóladagatali eru skipulagsdagar skráðir ásamt öðrum mikilvægum upplýsingum fyrir foreldra og forráðamenn. 

Hvað er í matinn?

Flestir grunnskólanemendur eru í mataráskrift. Skólamatur kostar það sama í öllum skólum. Ekki þarf að greiða mataráskrift fyrir fleiri en tvö börn frá sama heimili. Hér getur þú skoðað hvað er í matinn í Norðlingaskóla og hvernig þú skráir barnið þitt í mataráskrift. 

Um Norðlingaskóla

Norðlingaskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Skólinn tók til starfa í ágúst 2005 og liggur á milli Rauðavatns og Elliðavatns. Starfs- og kennsluhættir Norðlingaskóla byggja á hugmyndum um skóla án aðgreiningar  og áherslum menntastefnu Reykjavíkur þar sem lögð er áhersla á samkennslu, einstaklingsmiðun og teymisvinnu starfsfólks. 

Frístundaheimilið Klapparholt er fyrir börn í 1.-4. bekk í Norðlingaskóla og félagsmiðstöðin Holtið býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir börn og unglinga. 

Aðalbjörg Ingadóttir, skólastjóri. Netfang: adalbjorg.ingadottir@rvkskolar.is

Helgi Rafn Jósteinsson, aðstoðarskólastjóri: Netfang: helgi.rafn.josteinsson@rvkskolar.is

 Jónína Rós Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri. Netfang:  jonina.ros.gudmundsdottir@rvkskolar.is

Lísa María Kristjánsdóttir, deildarstjóri. Netfang: lisa.maria.kristjansdottir@rvkskolar.is

Fríða Elísa Ólafsdóttir, námsráðgjafi. Netfang frida.elisa.olafsdottir@rvkskolar.is

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Norðlingaskóli er: Jónína Rós Guðmundsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​

Skólabyrjun

Hér færðu gagnlegar upplýsingar um skólabyrjun. Eins og til dæmis hvað börnin þurfa að taka með sér í skólann og hvort börnin fái mat á skólatíma.

Starfsemi

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Norðlingaskóla? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars stefnu skólans fyrir síðasta ár, skipulag kennslu og ótalmargt fleira. 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfar skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans.

Viðmið um skólasókn og ástundun

Hér getur þú nálgast upplýsingar um viðmið í Norðlingaskóla varðandi skólasókn og ástundun nemenda. 

Mentor leiðbeiningar

Hér finnur þú Mentor leiðbeiningar vegna námsmats í Norðlingaskóla.

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í skólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að skólastarfi. Foreldrafélag  er starfrækt í öllum skólum Reykjavíkurborgar.

Skólahverfi Norðlingaskóla

Í Reykjavík eru mörg skólahverfi og barnið þitt hefur forgang í sinn hverfisskóla. Engu að síður eiga allir foreldrar kost á að sækja um skóla fyrir börn sín hvar sem er í borginni samkvæmt reglum um skólahverfi, umsókn og innritun. Hér finnur þú upplýsingar um hvaða götur tilheyra skólahverfi Norðlingaskóla.

Tímabundin undanþága frá skólasókn

Hér má nálgast beiðni um leyfi sem er þrír dagar eða lengra. Vinsamlegast skilið eyðublaðinu á skrifstofu skólans eða sendið það útfyllt á nordlingaskoli@rvkskolar.is. Athugið að hafa þarf samband við umsjónarkennara áður en leyfisbréfi er skilað.